Ahh, þessir undanfarnir dagar hafa verið geðveikt
skemmtilegir! Og flestir vita afhverju. RÉTTIR!!!!!
Allavega, rétt væri að segja frá atburðum undanfarna daga.
Þetta allt “stúss” í kringum þetta byrjaði á miðvikudeginum þar sem
ég, Erna og Hjördís fórum með hestana okkar frá Stóra Núpi og uppá
Hamarsheiði, og djöfull var mikið rok! Og að sjálfsögðu þurfti ég
að vera ég sjálf. Og hvað gerði ég? Ég datt af baki! Hesturinn
trylltist og hjóp í burtu. Þar sem ég er orðinn snillingur í því að
detta af baki var ég afar fljót að standa upp, hljóp svo eftir
hestinum og datt svo aftur um e-h þúfu sem var þarna fyrir mér!!!
Svo þegar við vorum komnar heim var farið snemma í háttinn þar sem
maður þurfti náttúrulega að vakna snemma og fara á móti
safninu
Fimmtudagurinn rann svo loks upp, kannski of snemma fyrir minn
smekk
Og um hálf 9 leitið kom Logi ásamt Ernu Þ. og Árný Fjólu.
Og ég sýndi mínar snilldar takta, hljóp í áttina að Loga og ætlaði
að knúsa hann, og hvað gerði ég? DATT! Svo var keyrt uppá
Hamarsheiði, beðið eftir strákunum. Svo komu Elvar, Finnur, Jóngó,
Gummi, Gestur og Steini! Við lögðum svo loks af stað frá
Hamarsheiði, svo þegar komið var framhjá Fossnesi, þá datt ég af
baki! Var með glæsilega lendingu! Enda orðin pro! En ég var ekki sú
fyrsta til að detta
vil bara vekja athygli á því að hún Árný fékk
þann heiður á því að verða sú fyrsta til að detta af baki!! Ekki
ég
Eftir dágóða stund og nokkur “næstum því” dottið af baki hjá
mér, var farið í Haga þar sem við hittum Guðna. Við stoppuðum þar í
örlitla stund og lögðum svo að stað ásamt Guðna.
Næsta stopp minnir mig hafi verið uppá Gaukshöfða. Þar fengu
strákarnir sér að staup og að reykja, á meðan við stúlkurnar tókum
þónokkrar myndir með hattinum hans Finns
svo var ferðinni haldið
áfram. Svo þegar við vorum komin að safninu rákum við það niður á
Ásólfsstaði. Og þar var spjallað, etið og hvílt sig. Við rákum svo
safnið að Fossnesi. Og vorum við komin þangað um hálf 9 leitið! Sem
þýðir að við sem komum frá Hamarsheiði (þ.e.a.s. þeir sem að
þraukuðu alla þessa leið
) höfðum verið á hestbaki í u.þ.b. 10
klst! Svo þegar ég var
komin heim um 9 leitið, sofnaði ég um leið og ég datt í
rúmið!
Föstudagurinn byrjaði svo eldsnemma um morguninn! En til að
vera nákvæmnari þá byrjaði hann hjá mér kl 05:40! Lögðum við Stóra
Núps pakkið af stað um hálf 7 leitið uppá Fossnesi. Svo var rekið
niður með safninu og það var helvíti gaman. Þegar lítið var að gera
tók maður nokkra spretti fram og til baka með safninu. Svo var
komið að sjálfum réttunum!
Þar var sko gaman. Var mikið að dissa
litla frænda minn fyrir að vera svona mikill hnakki og
borgarbarn!
Svo fórum ég, Eiki, Elvar, Jóngó, Jóki, Helga, Hjördís,
Skarpi, Nonni, Grétar, Fjalar, Gerða og Svenni með okkar kindur
heim á Stóra Núp. Það gekk bara helvíti vel og var mjög gaman. Svo
fengum ég, mamma, pabbi, Elvar og Nonni okkur good old fashion
kjötsúpu!
Það eru ekki réttir án þess
Ég
lagði mig svo, fór í sturtu og fann mig til fyrir réttarballið.
Ferðinni var reyndar fyrst haldið uppá Fossnes. Valur skutlaði mér,
Nonna, Eika, Skarpa, Hildi Gróu og Svenna þangað. Og vegna þess að
þetta var aðeins 5 manna bíll þurfti ég að sitja hálf ofaná Eika og
Svenna var skellt í skottið. Og í Fossnesi hitti maður fullt af
fólki úr Búrfellspakkinu, djöfull var gaman að sjá þau
einnig
voru líka fullt af túristum þarna! Og þegar Nonni ætlaði að segja
þeim að koma útí fjárhús og halda drykkjunni áfram þar, sagði hann
einfaldlega: “Hey everybody! We shall all go to the sheephouse now!
Just follow me, the pretty guy!!! EVERYBODY FOLLOW THE PRETTY GUY!”
ég held að það sé óhætt fyrir mig að segja að bróðir minn sé
EGÓ!!
Loksins var svo keyrt mann útí Árnes. En það var sem betur fer
ekkert vesen fyrir mig að komast inn
en reyndar var ég yngsta
manneskjan þarna heeelvíti lengi!
en þarna var dansað, sungið og
það var bara gaman
Svo hitti maður Jóa og Örvar. Þeir voru mjööög
hressir skulum við segja
það var mjög gaman að sjá þá, við
spjölluðum e-h og margt hefur sko breyst frá því að við vorum í
Flúðaskóla! Svo var bara haldið áfram að dansa fram eftir nótt!
Geðveikt gaman
Svo var ég komin heim um svona hálf 5
leitið
Svo þessa síðustu 2 daga hef ég verið að sofa! Án alls
djóks!
En
reyndar þá þarf ég að halda áfram að lesa Hvid Sommer! Er að fara í
próf næsta dag. Svo þarf ég einnig að lesa Sölku Völku. Og ég er
svo innilega ekki að nenna því!
En
þetta hafa verið gjörsamlega brilliant undanfarnir dagar!
ég
hitti fullt af skemmtilegu fólki og þetta var bara
gaman!